Agust 的个人资料Agust's space照片日志列表 工具 帮助

日志


8月25日

Maraþon

Maður verður nú að segja til hamingju til Doda fyrir að hlaupa sitt fyrsta hálfa maraþon. Hann náði þessu á 2.03 sem bara alls ekki slæmt.
Ætlli maður verði ekki bara að skora á hann í hálft maraþon  á næsta ári. Það gefur mér lika allveg heillt ár til að koma mér í hlaupaform :)
8月23日

Hoowercraft myndir

Ég, Áki og Viðar fórum um daginn að prófa að keyra Hoowercraft og tókum nokkrar myndir. Þetta var helvíti gaman. Maður nær ágætum hraða á þessu, sérstaklega skrítið að geta keyrt bæði á láð og legi. Ég átti nokkrar góða árekstar þarna ( nei, ég setti ekki myndir af því á netið ;), lenti einu sinni á einhverjum stóri grjóti og hélt að ég hefð brotinn botninn á tækinu en sem betur fer þá er botninn úr Keflar þannig að það reddaðist. Mér leist nú samt ekki á svipinn á leiðbeinandanum. Ég veit ekki hvort hann varð hræddur eða bara hvort honum varð bara illa við mig. Varð eithvað tungulatur eftir þetta atvik.
Ég nátturulega létt ekki deigan síga og hélt áfram að botna. Komst á svaka hraða og ..... endað mjög fljótlega í einhverjum runna. Held að honum hafi bara verið létt þegar hann komst aftur í svona sunnudags rúnt fýlling með Áka eða Vidda on board ;)irr
"þeirra útgáfa gæti verið eithvað aðeins öðruvísi, en þið vitið að mín er rétt"
8月16日

Tæland Muay Thai

Þá er það komið á hreint. Maður er á leiðinni til Tælands.
Fer að æfa Muay Thai í búðum sem heita kaewsamrit og eru rétt fyrir utan Bangkok. Þetta á eftir að vera ævintýri. Það verður áhugavert að sjá hvernig svona byrjandi eins og ég plumma mig þegar maður stekkur í djúpulaugina. Þetta verður svona dæmi um að sink or swim.
Vonandi nær maður að læra eithvað að viti þarna. Er búinn að ákveða að vera þarna í fulla 3 mánuði þannig að vonandi kemur eithvað gott úr því.
Annars er maður búinn að heyra því líkar sögur í conditioning/fitness dótið þarna út. Er víst allgjör geðveiki.
Ég hef nú meiri áhyggjur samt af lenda í Cold Turkey með Pepsi Max. Vera án þess í 3 mánuði á eftir að verða lífsreynsla. Maður getur ekki verið að taka second best drykki eins og coke, diet coke, pepsi og annað drasl. Það er svo óhollt. Síðan mundi mér líka líða eins og ég væri svíkja góðan vin.
 
Allvega ég mun nota þetta svæði til að setja inn myndir o.s.fr.